Víkingur R. 3 - 1 Þróttur R.
1-0 Davíð Helgi Aronsson ('43 )
1-1 Aron Snær Ingason ('83 )
2-1 Stígur Diljan Þórðarson ('90 )
3-1 Atli Þór Jónasson ('92 )
Rautt spjald: Brynjar Gautur Harðarson, Þróttur R. ('88) Lestu um leikinn
1-0 Davíð Helgi Aronsson ('43 )
1-1 Aron Snær Ingason ('83 )
2-1 Stígur Diljan Þórðarson ('90 )
3-1 Atli Þór Jónasson ('92 )
Rautt spjald: Brynjar Gautur Harðarson, Þróttur R. ('88) Lestu um leikinn
Víkingur og Þróttur mættust í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins við erfiðar aðstæður á Víkingsvelli í kvöld. Það var seinkun á leiknum þar sem það þurfti að ryðja snjó af vellinum.
Stígur Diljan Þórðarson var nálægt því að koma Víkingum yfir eftir rúmlega tuttugu mínútna leik en skotið hans rétt framhjá.
Víkingar braut ísinn undir lok fyrri hálfleiks þegar Davíð Helgi Aronsson skoraði eftir fyrirgjöf frá Ármanni Inga Finnbogasyni. Erlingur Agnarsson var nálægt því að bæta öðru markinu við þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma en skotið í stöngina.
Stuttu síðar jafnaði Þróttur metin en Aron Snær Ingason skoraði þá glæsilegt mark. Hann lét vaða af löngu færi og boltinn fór í bláhornið.
Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma fékk Brynjar Gautur Harðarson sitt annað gula spjald og þar með rautt. Víkingum tókst að nýta sér liðsmuninn því Stígur Diljan og Atli Þór Jónasson skoruðu með stuttu millibili og tryggðu Víkingum titilinn.
Athugasemdir



