Enski sóknarmaðurinn Nicole Douglas er gengin til liðs við Gróttu en hún spilaði sinn fyrsta leik þegar Grótta mætti Víkingi fyrr í mánuðinum.
Nicole verður 26 ára í sumar og á að baki áhugaverðan feril. Hún er alin upp hjá stórliði Chelsea og kom við sögu hjá U17 og U19 ára landsliðum Englands.
Nicole verður 26 ára í sumar og á að baki áhugaverðan feril. Hún er alin upp hjá stórliði Chelsea og kom við sögu hjá U17 og U19 ára landsliðum Englands.
Nicole hélt 18 ára gömul vestur um haf til að læra og spila fótbolta með Arizona State háskólanum þar sem hún setti skólamet og skoraði á tíma sínum 60 mörk fyrir skólaliðið. Í nýliðavali fyrir bandarísku NWSL deildina árið 2023 fékk Washington Spirit Nicole til liðs við sig en með þeim spilaði hún 10 leiki áður en hún færði sig yfir í heimahagana og lék með London City Lionesses í næst efstu deild. Á síðsta ári lék Nicole með DC Power í hinni nýstofnuðu USL Super deild í Bandaríkjunum.
Magnús Örn Helgason, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu, er hæstánægður með liðsaukann.
„Það er spennandi fyrir okkur í Gróttu að fá leikmann í okkar raðir sem hefur spilað á jafn háu stigi og Nicole. Hún hefur marga góða kosti sem munu hjálpa liðinu á síðasta þriðjungi. Ekki síður er Nicole sterkur karakter sem mun án vafa hafa jákvæð áhrif á umhverfið. Við þurftum að sækja öflugan leikmann til að koma inn fyrir Rebekku Sif og teljum að vel hafi tekist til."
Nicole er glöð með fyrstu vikurnar á Nesinu.
„Ég ánægð með að hafa skrifað undir hjá Gróttu og byrja nýjan kafla á ferlinum hér á Íslandi. Frá fyrsta samtali við félagið fann ég fyrir trú og metnaði fyrir komandi tímabil og fann að þetta skref myndi passa vel fyrir mig. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum við að hjálpa liðinu og tengjast öllu Gróttusamfélaginu sem svo vel er talað um."
Athugasemdir

