Fotbolti.net
25.03.26 - 17:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Haugland á leið í Þór

Haugland á leið í Þór
Canon

Mynd: Åsane

Fyrr í þessum mánuði var greint frá áhuga Breiðabliks á Norðmanninum Sebastian Haugland. Hann er að öllum líkindum á leið til Íslands en þó ekki í Kópavoginn því samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur norska félagið Hödd samþykkt tilboð Þórs í leikmanninn.

Haugland er 29 ára framherji sem hefur verið mjög heitur fyrir framan mark andstæðinganna síðustu misseri. Hann spilaði í neðri deildum Noregs framan af ferlinum en hefur að undanförnu unnið sig upp deildirnar og var farinn að vekja athygli frá bæði Kristiansund og Start í norsku úrvalsdeildinni samkvæmt norska miðlinum TV2.

Haugland var markahæsti leikmaður Hödd í norsku B-deildinni í fyrra og hefur alls skorað 17 mörk í 43 leikjum í norsku B-deildinni. Hann er samningsbundinn Hödd út árið og því þarf Þór að kaupa hann af norska félaginu.
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 10. sæti
TENGT EFNI

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 10. sæti

Breiðablik hafði samkvæmt heimildum Fótbolta.net talsverðan áhuga á því að fá Haugland í sínar raðir og norska félagið hefur verið meðvitað um að hann gæti farið fyrir gluggalok.

Þórsarar höfðu verið sterklega orðaðir við Magnus Holte, framherja Rosenborg, en ekkert varð úr því að hann kæmi í Þorpið.

Þór vann Lengjudeildina í fyrra og verður í Bestu deildinni á komandi tímabili. Þórsurum er spáð 10. sætinu í deildinni í spá Fótbolta.net fyrir tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.