Fotbolti.net
25.03.26 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Maguire nefnir besta miðvörð sögunnar að sínu mati

Harry Maguire.

Harry Maguire.

Canon

Mynd: EPA

Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, hefur útnefnt besta miðvörð allra tíma að sínu mati.

Maguire sagði við Goal að valið væri á milli tveggja leikmanna.
„Þegar kemur að mínum uppáhalds miðverði allra tíma þá elskaði ég að horfa á Jaap Stam og Rio Ferdinand spila fyrir Man Utd. Ég verð líka að segja að ég naut þess mikið að horfa á Sergio Ramos á sínum tíma hjá Real Madrid, þar sem hann vann alla þessa titla," sagði Maguire.

„Ef ég þyrfti að velja einn sem minn uppáhalds allra tíma, þá myndi ég líklega velja Ramos."

Maguire, sem hefur spilað með Man Utd frá 2019, segir jafnframt að tveir bestu miðverðir ensku úrvalsdeildarinnar séu Ferdinand og John Terry.
Sergio Ramos.

Sergio Ramos.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.