Fotbolti.net
25.03.26 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ótrúleg úrslit í Færeyjum

Ótrúleg úrslit í Færeyjum
Canon

Mynd: Færøsk fodbold

Hertz
Það áttu sér stað ótrúleg úrslit í fyrstu umferð úrvalsdeildar kvenna í Færeyjum í vikunni.

Viðureign HB og EB/Streymur-Hoyvik fer klárlega í sögubækurnar þar sem lokatölur í leiknum voru 30-0 fyrir HB, hvorki meira né minna.
Fyrir leikinn skrifaði HB á Facebook: „Fótboltinn er kominn aftur. Við hefjum mótið í Gundadali og þurfum á ykkur að halda.“

Þegar félagið tilkynnti síðan úrslitin, 30-0 sigur, var það gert á einfaldan og hnitmiðaðan hátt:

„Markaleikur í Gundadali."

HB er á toppi deildarinnar ásamt Klaksvík sem er í öðru sæti, en þær unnu "aðeins" 11-0 sigur í fyrstu umferð.

Klaksvík er langsigursælasta kvennaliðið í Færeyjum en HB kemur þar næst á eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.