25.04.08 - 12:44
Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmarkvörður Færeyja í kvennalið Vals (Staðfest)

Mynd: www.ki.fo

Mynd: www.ki.fo

Randi S. Wardum landsliðsmarkvörður Færeyja er gengin í raðir Íslandsmeistara Vals og er þegar komin með leikheimild með liðinu. Hún getur því leikið með Val í úrslitaleik Lengjubikars kvenna gegn KR í kvöld.
Wardum kemur frá KÍ í Færeyjum en hún hafði æft með Val í október á reynslu. Þá stefndi í að Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður liðsins og íslenska landsliðsins yfirgæfi félagið og félagið vantaði markvörð í hennar stað.
Ekkert varð úr því að Guðbjörg færi og því hættu Valsmenn við að fá Randi Wardum á þeim tíma. Guðbjörg meiddist svo alvarlega fyrr í apríl og spilar ekkert með liðinu í sumar. Því vantaði Val markvörð og leitaði aftur til Randi sem nú hefur fengið leikheimild með þeim.
,,Hún var til reynslu hjá okkur núna frá föstudegi til mánudags. Þetta er tvítug stelpa og hún er mjög efnileg. Það er hægt að vinna mikið með henni," sagði Freyr Alexandersson annar þjálfara Vals um hana er hún æfði með Val í október.
Fyrir hjá Val er markvörðurinn Ása Dögg Aðalsteinsdóttir sem nú í haust gekk upp í meistaraflokk. Hún spilaði vel fyrir 2.flokk liðsins og lék með U19 landsliðinu í Evrópukeppninni en vermdi jafnan varamannabekk meistaraflokksins og kom aldrei við sögu í Landsbankadeildinni á síðasta ári.

Heimild: KSÍ