Fotbolti.net
25.04.08 - 18:44
Magnús Már Einarsson

Helgi Már í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Helgi í leik gegn ÍA sumarið 2006.

Helgi í leik gegn ÍA sumarið 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Reynir Sandgerði hefur fengið markvörðinn Helga Má Helgason til liðs við sig frá Grindavík.
Helgi þekkir aðeins til í Sandgerði en hann lék með Reyni í þriðju deildinni árið 2002, þá nítján ára gamall.

Undanfarin ár hefur Helgi verið á mála hjá Grindavík en síðastliðið sumar lék hann þrjá leiki í fyrstu deild með liðinu.

Sumarið 2006 lék hann níu leiki í Landsbankadeildinni en alls á þessi 24 ára gamli leikmaður sautján leiki að baki í efstu deild.

Helgi Már hefur þegar fengið leikheimild með Reyni Sandgerði og hann getur því leikið með liðinu gegn Hvöt í Lengjubikarnum á morgun.

Sá leikur er úrslitaleikur um sigur í riðli þrjú og þar með sæti í undanúrslitum B deildar Lengjubikarsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.