Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 25. apríl 2019 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gullit: Guardiola þarf Messi til að vinna Meistaradeildina
Mynd: Getty Images
Hollenska goðsögnin Ruud Gullit hefur miklar mætur á Lionel Messi og telur hann vera helstu ástæðuna fyrir góðu gengi Barcelona.

Borið var saman gengi Pep Guardiola við stjórnvölinn hjá Barcelona og Bayern og gengi hans við stjórn hjá Manchester City. Gullit var ekki lengi að draga Messi fram í umræðuna.

„Guardiola nær ekki að vinna Meistaradeildina án Messi, það gerir gæfumuninn. Hann komst nálægt því með Bayern en mistókst. Þar var enginn Messi til að bjarga einvíginu," sagði Gullit við BeIN Sports.

„Messi gerði gæfumuninn svo oft fyrir Guardiola. Það er ekki hægt að kaupa þessi gæði, sama hversu miklum pening þú eyðir.

„Ég finn til með honum í hvert skipti sem honum tekst ekki að fara alla leið í keppninni. Ég get séð metnaðinn hans og óbilandi sigurvilja."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner