Fram 3 - 4 ÍBV
1-0 Taylor Marie Hamlett ('2 )
1-1 Fridrikka Marie Clementsen ('4 )
1-2 Emma Kate Young ('20 , sjálfsmark)
1-3 Allison Grace Lowrey ('43 )
2-3 Alda Ólafsdóttir ('75 )
2-4 Allison Grace Lowrey ('80 )
3-4 Taylor Marie Hamlett ('90 )
Lestu um leikinn
1-0 Taylor Marie Hamlett ('2 )
1-1 Fridrikka Marie Clementsen ('4 )
1-2 Emma Kate Young ('20 , sjálfsmark)
1-3 Allison Grace Lowrey ('43 )
2-3 Alda Ólafsdóttir ('75 )
2-4 Allison Grace Lowrey ('80 )
3-4 Taylor Marie Hamlett ('90 )
Lestu um leikinn
ÍBV byrjar Bestu-deildina af krafti en liðið hafði 4-3 sigur gegn Fram í 1. umferð deildarinnar á Lambhagavellinum í dag.
Það var mikið fjör í upphafi leiks. Taylor Marie Hamlett skoraði úr fyrstu sókn Framara á 2. mínútu eftir fyrirgjöf sem Hamlett mætti og setti í netið.
Eyjakonu svöruðu rúmri mínútu síðar eftir fyrstu hornspyrnu leiksins þar sem boltinn datt fyrir Fridrikku Marie Clementsen sem setti boltann í Ashley Brown og í markið.
Hornspyrnurnar hjá Eyjakonum héldu áfram að skila sínu því á 20. mínútu kom annað mark þeirra er Allison Patricia Clark setti boltann inn á teiginn og varð Emma Kate Young fyrir því óláni að stanga boltanum í eigið net.
Undir lok hálfleiksins komst ÍBV í tveggja marka forystu og enn og aftur eftir hornspyrnu. Ashley varði vel í markinu, en boltinn datt út á Allison Grace Lowrey sem potaði boltanum inn.
Fram var að ógna í síðari hálfleiknum og náðI Alda Ólafs að skora eftir sendingu frá Taylor, en markið dæmt af vegna rangstöðu. Guðný Geirs varði þá vel frá Taylor þegar um tuttugu mínútur voru eftir.
Áfram héldu Framarar að pressa og náðu þær að minnka muninn þegar stundarfjórðungur var eftir. Alda Ólafs slapp á bakvið vörnina og lyfti boltanum yfir Guðnýju í markinu.
Framkonur komnar aftur inn í leikinn en Allisson Grace var fljótt að slökkva neistann í heimakonum með öðru marki sínu fimm mínútum síðar. Taylor náði að minnka muninn undir lok leiksins, en lengra komust Framarar ekki.
Fantagóð byrjun hjá ÍBV sem er komið á blað í Bestu deildinni. Eyjakonum er spáð 8. sæti deildarinnar á meðan Fram er spáð 10. sæti í ár.
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 - 0 | +2 | 3 |
| 2. Víkingur R. | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 - 1 | +1 | 3 |
| 3. ÍBV | 1 | 1 | 0 | 0 | 4 - 3 | +1 | 3 |
| 4. FH | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 5. Fram | 1 | 0 | 0 | 1 | 3 - 4 | -1 | 0 |
| 6. Grindavík/Njarðvík | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 7. Stjarnan | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 - 2 | -1 | 0 |
| 8. Valur | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 9. Þróttur R. | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 - 2 | -2 | 0 |
| 10. Þór/KA | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |



