25.05.05 - 13:52
Bjarki Guðmundsson til ÍA (Staðfest)


Mynd: Merki


Mynd: Merki
Bjarki Freyr Guðmundsson skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnuliðið ÍA. Bjarki er 29 ára gamall markmaður og hefur æft undanfarið með Skagaliðinu en hann lék áður meðal annars með KR og Keflavík.
ÍA varð fyrir miklu áfalli þegar það kom í ljós í vikunni að Þórður Þórðarsson einn allra besti markmaður deildarinnar þurfti að leggja hanskana á hilluna vegna erfiðra veikinda.
Páll Gísli Jónsson var í marki ÍA gegn Val á mánudaginn en spennandi verður að sjá hvor þeirra mun verja mark Skagamanna í sumar.
Páll Gísli Jónsson var í marki ÍA gegn Val á mánudaginn en spennandi verður að sjá hvor þeirra mun verja mark Skagamanna í sumar.
