25.05.06 - 12:16
Hafliði Breiðfjörð
Robert Pires gengur í raðir Villarreal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski kantmaðurinn Robert Pires sem hefur leikið undanfarin sex ár hjá Arsenal er genginn í raðir spænska félagsins Villareal en hann hefur náð samkomulagi um tveggja ára samning við þá gulu og mun fara á frjálsri sölu komist hann klakklaust í gegnum læknisskoðun hjá félaginu.
,,Ég hef ákveðið að taka þessari nýju aáskorun hjá Villareal næstu tvö árin á ferli mínum," sagði Pires á vefsíðu Arsenal í morgun.
Pires sem er 33 ára gamall hefði orðið samningslaus hjá Arsenal í júní en félagið vildi aðeins bjóða honum eins árs framlengingu þó hann hafi beðið um tvö ár.
,,Ég er hæstánægður með að hafa samið við Villareal til næstu tveggja leiktíða og vonast til að geta hjálpað félaginu að halda frábæru starfi sínu áfram sem þeir hafa unnið undanfarin ár," sagði Pires svo á vefsíðu Villarreal.
Pires lék 284 leiki fyrir Arsenal. Hann var valinn knattspyrnumaður ársins af blaðamönnum árið 2002 og með Arsenal vann hann ensku úrvalsdeildina tvisvar og FA Cup tvisvar.