25.05.06 - 18:27
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Morientes til Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fernando Morientes gekk nú rétt í þessu til liðs við spænska liðið Valencia frá Liverpool eftir að aðeins eins og hálfs árs dvöl á Anfield. Ekki er vitað hversu mikið Valencia þurfti að borga fyrir þennan snjalla sóknarmann né hversu langan samning Morientes gerði við félagið.
Rafa Benitez borgaði 6,3 milljónir punda fyrir Morientes í janúar á síðasta ári frá Real Madrid. Honum tókst hinsvegar aðeins að skora 12 mörk í 61 leik fyrir Liverpool og náði aldrei að aðlagast enska boltanum.
Morientes vann ensku bikarkeppnina með Liverpool þegar þeir unnu West Ham en hann kom inná í úrslitaleiknum. Hann var ekki hluti af 23 manna hópi Luis Aragones, landsliðsþjálfara Spánar, sem hann valdi fyrr í mánuðinum og tekur því ekki þátt í Heimsmeistaramótinu í sumar.