25.05.07 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Ólafur Eiríksson til Vals (Staðfest)

Bjarni Ólafur í leik með Valsmönnum sumarið 2005.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Valsmenn sendu frá sér fréttatilkynningu nú í morgun þar sem þeir staðfestu að varnarmaðurinn sterki Bjarni Ólafur Eiríksson sé genginn í raðir félagsins frá Silkeborg í Danmörku.
Hann gerir fjögurra og hálfs árs samning við Valsmenn sem gildir út tímabilið 2011 en getur þó ekki leikið með liðinu strax því hann er með álagsbrot á rist og verður því frá keppni í fjórar til sex vikur. Líklegt er því að hann verði tilbúinn í 11. umferð Landsbankadeildarinar er Valur mætir Fylki.
Bjarni Ólafur lék síðast með Val sumarið 2005 og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína og var það árið valinn í íslenska landsliðið og lék með því tvo landsleiki.
Að tímabilinu loknu fór hann til reynsluæfinga hjá liðum á Norðurlöndunum eins og Midtjylland, Silkeborg, Valerenga og Odd Grenland og í janúar 2006 gekk hann í raðir Silkeborg í Danmörku.
Liðið féll hinsvegar úr dönsku úrvalsdeildinni nú í maí og því vildi hann söðla um og ákvað að lokum að snúa aftur heim og leika með Val eftir að hafa leikið 32 leiki með liðinu.
Hann á að baki 53 leiki í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim eitt mark sem hann skoraði í fyrstu umferðinni gegn Grindavík árið 2005.
Hann lék alla 18 leiki Vals í Landsbankadeildinni það sumar og alla fimm bikarleikina er Valur varð bikarmeistari þetta ár. Í lok ársins var hann svo valinn íþróttamaður Vals 2005.