25.05.07 - 10:13
Magnús Már Einarsson
Harry Redknapp: Ég hef alltaf hrifist af Hermanni

Harry Redknapp og stuðningsmenn Portsmouth á góðri stundu.

Mynd: Getty Images

Harry Redknapp og stuðningsmenn Portsmouth á góðri stundu.

Mynd: Getty Images
Eins og við höfum greint frá gerði varnarmaðurinn Hermann Hreiðarsson tveggja ára samning við Portsmouth í gærkvöldi. Harry Redknapp stjóri Portsmouth segist alltaf hafa verið hrifinn af Hermanni.
,,Ég hef alltaf hrifist af Hermanni. Ég hef áður reynt að kaupa hann og ég er ánægður með að hann er núna hér hjá Portsmouth," sagði Redknapp við opinbera heimasíðu félagsins.
,,Hann hefur frábæra reynslu í úrvaldseildinni, hann er stór, fljótur, mjög góður í loftinu og mikill keppnismaður."
,,Hann getur spilað sem vinstri bakvörður og í miðri vörninni svo hann gefur okkur nokkra möguleikika," bætti Redknapp við.
Sjá einnig:
Hermann Hreiðarsson í viðtali á BBC um félagaskiptin
Hermann Hreiðarsson til Portsmouth (Staðfest)

Heimild: Sky