25.05.07 - 19:57
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Gareth Bale til Tottenham (Staðfest)

Gareth Bale

Mynd: Getty Images

Gareth Bale

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur gengið frá kaupunum á hinum efnilega vinstri bakverði Southampton, Gareth Bale, fyrir allt að tíu milljónir punda en hann er aðeins sautján ára gamall.
Southampton sagði að Tottenham borgi strax fimm milljónir punda fyrir leikmanninn og að verðmiðinn geti hækkað upp í tíu milljónir punda.
,,Ég er bara spenntur yfir því að ganga til liðs við klúbbs eins og Spurs. Það er á réttri braut og ég vil vera hluti af því,” sagði Bale.
Bale átti aðeins eitt ár eftir af samning sínum við Southampton og hann hafði einnig verið orðaður við Arsenal og Manchester United.

Heimild: BBC