Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 10:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brunaútsala hjá West Ham - Man Utd vill tvo
Powerade
Mateus Fernandes er skotmark Man Utd.
Mateus Fernandes er skotmark Man Utd.
Mynd: EPA
Fer Ederson líka til Man Utd?
Fer Ederson líka til Man Utd?
Mynd: EPA
Hvað verður um Bowen?
Hvað verður um Bowen?
Mynd: EPA
Manchester United er með augastað á Mateus Fernandes og Ederson, Tottenham vill Paulo Dybala og Nottingham Forest horfir til Hayden Hackney. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins, en hann er í boði Powerade og það er BBC sem tekur saman það helsta í slúðurheimum.



Manchester United hefur ent fyrirspurn um möguleikann á því að fá Mateus Fernandes (21) frá West Ham. Arsenal og PSG fylgjast einnig með portúgalska landsliðsmanninum sem er metinn á 80 milljónir punda. (Mail)

Man Utd er einnig komið vel á veg í viðræðum um kaup á Ederseon (26) miðjumanni Atalanta, en það er enn smá í land svo félögin nái saman um kaupverð. (Sky Sports)

Tottenham horfir ekki lengur til Paulo Dybala (32) sóknarmanni Roma sem varð heimsmeistari með Argentínu 2022. (Football Insider)

Nottingham Forest undirbýr tilboð í Hayden Hackney (23) miðjumann Middlesbrough. (Teamtalk)

Fenerbahce fylgist með Randal Kolo Muani (27) sem var á láni hjá Tottenham frá PSG í vetur. (Fanatik)

Cristian Romero (28) fyrirliði Tottenham væri til í að vinna með Diego Simeone sem stýrir Atletico Madrid. (Teamtalk)

Maxence Lacroix (26), varnarmaður Crystal Palace, er líklega á förum frá félaginu í sumar og hafa nokkur úrvalsdeildarfélög áhuga. (RMC Sport)

Tottenham íhugar að reyna við Anatoliy Trubin (24) markvörð Benfica í sumar. (A Bola)

Igli Tare, yfirmaður fótboltamála hjá AC Milan, hefur trú á því að Luka Modric (40) skrifi undir annan samning hjá félaginu. (DAZN)

Jarrod Bowen, Crysencio Summerville, Mateus Fernandes og Konstantinos Mavropanos gætu allir yfirgefið West Ham í sumar en félagið þarf að selja leikmenn fyrir um 100 milljónir punda eftir fallið. (talkSPORT)

Barcelona er áfram í kjörstöðu til að landa Marcus Rashford frá Man Utd en Jose Mourinho gæti reynt að fá hann til Real Madrid. (Football Insider)

Micky van de Ven hefur ýjað að því að hann verði áfram hjá Tottenham eftir að félagið hélt sér uppi í úrvalsdeildinni. (Metro)

Andy Robertson er á förum frá Liverpool til Tottenham. (Liverpool Echo)

Fyrirliðinn Lawrence Shankland (30) er á leið frá Hearts til Rangers í sumar. (Record)
Slapp
banner
banner
banner