Fotbolti.net
25.05.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víkingur óskar eftir undanþágu frá KSÍ

Aron er eini leikfæri markvörður Víkings í dag.

Aron er eini leikfæri markvörður Víkings í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur hefur óskað eftir því að fá undanþágu frá KSÍ til þess að geta fengið inn markvörð utan félagaskiptaglugga. Glugginn er lokaður og verður það í tæpa tvo mánuði til viðbótar og Víkingur er sem stendur einungis með einn markvörð til taks.

Ingvar Jónsson greindist með krabbamein í upphafi mánaðar og verður því miður ekki meira með. Uggi Jóhann Auðunsson hefur verið varamarkvörður fyrir Aron Snæ Friðriksson en Uggi var ekki á skýrslu gegn FH í Bestu deildinni á föstudag. Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen sem er þjálfari Víkings.
„Við erum að leita lausna núna með KSÍ, Uggi átti að vera með okkur en hann greindist með brjósklos og er því fjarverandi. Við lánuðum Jochum (Magnússon) til Völsungs, og því er staðan ekkert sérstök í markmannsmálunum núna, erum bara með einn leikfæran markmann."

„Planið á móti FH var fyrst og fremst að biðja til guðs um að ekkert kæmi fyrir hann (Aron Snæ). Við þurftum að grafa djúpt, leita aftur í tímann, og niðurstaðan var okkar maður sem hefur spilað margar stöður í gegnum tíðina - Viktor Örlygur. Hann á nokkra leiki í markinu og ef það hefði farið á versta veg þá hefði ekkert annað verið í stöðunni en að spila honum."

„Við erum núna að skoða möguleikana, erum í sambandi við KSÍ um að fá undanþágu fyrir markmanni."

„Ég vona að við náum því fyrir Valsleikinn (um komandi helgi), en ég er ekki bjartsýnn á það. En eftir landsleikjapásuna vona ég að við verðum búnir að fá inn markmann,"
segir Sölvi.

Vikingur heimsækir á morgun Stjörnuna og á sunnudag fer liðið svo á Hlíðarenda í lokaleikinn fyrir landsleikjahlé.
Viktor Örlygur var varamarkvörður gegn FH

Viktor Örlygur var varamarkvörður gegn FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.10+2828
2KR10+1525
3Fram9+920
4Breiðablik9+715
5Valur10-315
6ÍA9-412
7Keflavík9-611
8KA9-310
9Stjarnan10-410
10Þór9-166
11ÍBV9-95
12FH9-142
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.