Fotbolti.net
25.06.07 - 16:28
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Thierry Henry búinn að skrifa undir hjá Barcelona (Staðfest)

Henry fyrir utan Nou Camp í dag en hann mun leika í treyju númer 14 hjá Barcelona.

Henry fyrir utan Nou Camp í dag en hann mun leika í treyju númer 14 hjá Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska stórveldið Barcelona hefur gengið endanlega frá kaupunum á franska sóknarmanninum Thierry Henry frá Arsenal.
Eins og við greindum frá stóðst Henry læknisskoðun á Nou Camp í morgun og hefur núna verið gengið frá öllum formsatriðum.

Þessi franski landsliðsmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við Frank Rijkaard og hans menn og er kaupverðið 16,1 milljón punda. Henry mun vera í treyju númer 14 hjá Barcelona en hann var með sama númer á bakinu hjá Arsenal.

,,Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað. Það hefur tekið langan tíma en ég er loksins hér. Ég er ánægður að vera hérna og get ekki beðið eftir að sýna hvað ég get gert. Vonandi verð ég mikill fengur fyrir liðið,” sagði Henry.

Þá lýsti Juan Laporta, forseti Barcelona, yfir ánægju sinni að vera loksins búinn að fá Henry á Nou Camp.

,,Thierry Henry er leikmaður sem við höfum verið á eftir í mörg og núna er hann hér. Johan Cruyff vildi kaupa Thierry Henry til Barcelona þegar hann var ungur leikmaður,” sagði Laporta.

,,Þegar ég var kosinn forseti árið 2003 vildi ég kaupa hann, við vildum einnig kaupa hann í fyrra og í dag er mikil ánægja að sjá hann hérna. Hann er einn besti leikmaður í heimi og hann kemur á besta tíma til Barcelona,” sagði Laporta.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.