25.06.07 - 18:12
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Roma kaupir 50% hlut í Mauro Esposito (Staðfest)

Esposito í leik með ítalska landsliðinu

Mynd: Getty Images

Esposito í leik með ítalska landsliðinu

Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Mauro Esposito mun spila með Roma á næsta tímabili eftir að Cagliari seldi þeim 50% hlut í leikmanninum.
Esposito, sem var frá í sex mánuði á síðasta tímabili var einnig orðaður við Roma á síðasta tímabili en þá mistókst þeim að ganga frá kaupunum.
,,Esposito sagði mér að hann myndi vilja vera áfram hjá Cagliari að eilífu en að spila fyrir Roma var frábært tækifæri og ég hafði kjark í að segja nei,” sagði Massimo Cellino forseti Cagliari.
Talið er að Roma hafi borgað 3,5 milljónir punda fyrir þennan 50% hlut í Esposito auk þess sem Gianluca Curci og Daniele Galloppa fara í hina áttina á láni.
Esposito er annar leikmaðurinn sem Cagliari missir á stuttum tíma en David Suazo mun ganga endanlega til liðs við Inter Milan seinna í þessari viku.

Heimild: Channel 4