25.06.07 - 22:44
Hörður Snævar Jónsson
Yaya Toure til Barcelona (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Barcelona hefur gengið frá kaupunum á Yaya Toure frá Monaco en frá þessu greindi spænska félagið í kvöld. Verðmiðinn á Toure sem kemur frá Fílabeinsströndinni er talin vera í kringum 10 milljónir evra. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.
Yaya, sem er yngri bróðir Kolo Toure leikmans Arsenal, á að öllum líkindum að berjast um sæti í liðinu við Thiago Motta og Edmilson en þeir eru allir varnarsinnaðir miðjumenn.
Toure er annar leikmaðurinn í sumar sem gengu til liðs við Barcelona því í fyrr í dag gekk Thiery Henry til liðs við félagið frá Arsenal.
Toure er annar leikmaðurinn í sumar sem gengu til liðs við Barcelona því í fyrr í dag gekk Thiery Henry til liðs við félagið frá Arsenal.
Heimild: Reuters
