Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2022 20:45
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: KFG á toppinn - Ingvi Rafn skoraði þrennu í sigri Kormáks/Hvatar
Jóhann Ólafur skoraði fyrsta mark KFG
Jóhann Ólafur skoraði fyrsta mark KFG
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kormákur/Hvöt vann góðan og mikilvægan sigur á Elliða
Kormákur/Hvöt vann góðan og mikilvægan sigur á Elliða
Mynd: Aðdáendasíða Kormáks
KFG er komið á toppinn í 3. deild karla eftir 3-1 sigur á KFS í dag en á sama tíma vann Kormákur/Hvöt góðan 3-2 sigur á Elliða á Blönduósi.

Sindri og Augnablik gerðu 1-1 jafntefli á Höfn í Hornafirði í dag en það var Hermann Þór Ragnarsson sem kom Sindramönnum á bragðið á 14. mínútu leiksins. Augnablik var ekki lengi að bregðast við og jafnaði Arnar Laufdal Arnarsson metin aðeins fimm mínútum síðar.

Sindri er í 4. sæti með 14 stig en Augnablik í 6. sæti með 11 stig.

Kormákur/Hvöt reynir þá að spyrna sér úr fallbaráttunni og hafðist í dag 3-2 sigur á Elliða. Ingvi Rafn Ingvarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir heimamenn í leiknum. Kormákur/Hvöt er í 10. sæti með 9 stig en Elliði í 5. sæti með 13 stig.

KFG er þá komið í efsta sæti deildarinnar eftir 3-1 sigur á KFS en liðið er nú með 18 stig. Markaskorarinn knái, Jóhann Ólafur Jóhannsson, gerði eina mark fyrri hálfleiksins áður en Birgir Ólafur Helgason og Hlynur Már Friðriksson bættu við forystu KFG í síðari hálfleiknum. Eyþór Orri Ómarsson minnkaði muninn þegar stundarfjórðungur var eftir. KFS er í næst neðsta sæti með 9 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Sindri 1 - 1 Augnablik
1-0 Hermann Þór Ragnarsson ('14 )
1-1 Arnar Laufdal Arnarsson ('19 )

Kormákur/Hvöt 3 - 2 Elliði
1-0 Ingvi Rafn Ingvarsson ('4 )
2-0 Ingvi Rafn Ingvarsson ('16 )
2-1 Pétur Óskarsson ('42 )
3-1 Ingvi Rafn Ingvarsson ('66 )
3-2 Daníel Steinar Kjartansson ('76 )

KFS 1 - 3 KFG
0-1 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('12 )
0-2 Birgir Ólafur Helgason ('48 )
0-3 Hlynur Már Friðriksson ('59 )
1-3 Eyþór Orri Ómarsson ('76 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner