Fotbolti.net
25.06.25 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Falur á níu milljónir punda - Orðaður við Man Utd og Everton

Falur á níu milljónir punda - Orðaður við Man Utd og Everton
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Everton og Manchester United hafa samkvæmt talkSPORT bæði áhuga á því að fá Wilfred Ndidi, leikmann Leicester, í sínar raðir.

Ndidi er nígerískur miðjumaður sem er með níu milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum sem hægt er að virkja núna í sumar þar sem Leicester féll úr úrvalsdeildinni.
Ndidi verður 29 ára í desember. Hann hefur verið hjá Leicester síðan 2017 þegar hann kom frá Genk í Belgíu.

Hann varð bikarmeistari með Leicester 2021 og á að baki 66 landsleiki. Hann lék 28 deildarleiki með Leicester á liðinni leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.