Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Newcastle tilbúið að bjóða hæstu laun í sögu félagsins
Mynd: EPA
Newcastle ætlar sér alls ekki að missa Alexander Isak, framherja liðsins, frá sér í sumar.

Liverpool, Barcelona og Arsenal hafa áhuga á Svíanum og var hann nýlega orðaður við Liverpool.

Newcastle er tilbúinn að gera Isak að launahæsta leikmanni í sögu félagsins til þess að halda honum á St. James' Park.

Hann var keyptur frá Real Sociedad sumarið 2022 og hefur verið iðinn við kolann, skorað 54 mörk í 86 deildarleijum.

Hann er með 150 þúsund pund í vikulaun og nýr samningur myndi færa hann upp fyrir þá Bruno Guimaraes, Sandro Tonali og Anthony Gordon sem eru sem stendur með hærri laun en hinn 25 ára gamli Isak. Núgildandi samningur rennur út sumarið 2028.
Athugasemdir