25.07.06 - 15:29
Magnús Már Einarsson
Helgi Pjetur lánaður til Stjörnunnar (Staðfest)

Helgi Pjetur fagnar marki gegn Stjörnunni í fyrra.

Mynd: Leiknir.com/Matthías Ægisson

Helgi Pjetur fagnar marki gegn Stjörnunni í fyrra.

Mynd: Leiknir.com/Matthías Ægisson
Stjarnan úr fyrstu deildinni hefur fengið miðju- og sóknarmanninn Helga Pjetur Jóhannsson að láni frá liði Leiknis úr sömu deild út þetta tímabil.
Helgi Pjetur var markahæsti leikmaður Leiknis í annarri deildinni í fyrra með sjö mörk en í ár hefur hann aðeins komið við sögu í einum leik með Leiknismönnum í fyrstu deildinni og hefur hann nú gengið til liðs við Stjörnuna sem er í fjórða sæti deildarinnar.
Þess má geta að Helgi Pjetur skoraði sigurmark Leiknis gegn Stjörnunni í 16.umferðinni í annarri deildinni í fyrra og það mark tryggði Leikni sæti í fyrstu deildinni.
Þess má geta að Helgi Pjetur skoraði sigurmark Leiknis gegn Stjörnunni í 16.umferðinni í annarri deildinni í fyrra og það mark tryggði Leikni sæti í fyrstu deildinni.
