Fotbolti.net
25.07.06 - 16:43
Magnús Már Einarsson

Priske til Club Brugge (Staðfest)

Priske til Club Brugge (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Club Brugge hefur gengið frá kaupunum á danska varnaramanninum Brian Priske frá Portsmouth. Priske sem er 29 ára gerði fjögurra ára samning við Brugge.
Hann kom til Portsmouth frá Genk sumarið 2005 og lék alls 33 leiki með liðinu áður en honum var sagt í sumar að hann mætti fara eftir að Glen Johnson kom á láni frá Chelsea.

,,Á Englandi eru flottir leikir í hverri viku en ég átti í vandræðum með stjórann. Ég vil spila hvern einasta leik," sagði Priske við Het Laatste Nieuws.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.