Fotbolti.net
25.08.05 - 06:12
Hafliði Breiðfjörð

Aliadiere til West Ham (Staðfest)

Aliadiere til West Ham (Staðfest)
Canon
Franski framherjinn Jeremie Aliadiere er genginn í raðir West Ham á láni frá Arsenal. Hann hafði fyrr í sumar gengið til liðs við Celtic í skosku deildinni út tímabilið en ákvað að hætta við það og spila heldur í ensku úrvalsdeildinni og því yfirtóku West Ham samninginn.
Aliadiere lék aðeins tvo leiki fyrir Celtic en í báðum kom hann inná sem varamaður gegn Artmedia Bratislava í forkeppni Meistaradeildarinnar.

,,Ég er mjög vonsvikinn að þetta gekk ekki upp eins og ég átti von á," sagði Frakkinn.

Talsmaður Celtic sagði: ,,Því miður gengu hlutirnir ekki upp fótboltalega séð fyrir Jeremie og hann vildi snú aftur til Englands."

Jafnvel þrátt fyrir langtíma meiðsli Chris Sutton náði Aliadiere ekki að vinna sér sæti í liði Celtic því John Hartson og Maceiej Zurawski voru á undan honum í goggunarröðinni og Shaun Maloney og Craig Beattie hafa verið að standa sig.

Hann hafði hlakkað til að spila í Meistaradeildinni með Celtic en liðið féll út fyrir Artmedia í annarri umferð forkeppninnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.