Fotbolti.net
25.08.05 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

Clinton Morrison til Crystal Palace (Staðfest)

Clinton Morrison til Crystal Palace (Staðfest)
Canon
Clinton Morrison framherji Birmingham var í dag seldur til Crystal Palace á tvær milljónir punda en Norwich og Southampton höfðu einnig barist um að fá leikmanninn. Morrison skrifaði undir þriggja ára samning við Palace og er fenginn til félagsins til að keppa í ensku úrvalsdeildinni að ári en þangað stefna Palace menn aftur.
,,Clinton hefur ekki bara verið keyptur fyrir þessa deild heldur fyrir hærri deild líka," sagði Ian Dowie stjóri Palace.

,,Ef við hefðum keypt hann á síðustu leiktíð þá hefðum við kannski haldið okkur í úrvalsdeildinni."

Morrison hefur verið illa tekið í hvert sinn sem hann hefur snúið aftur á Shelhurst Park en hann yfirgaf félagið og gekk í raðir Birmingham fyrir þremur árum. Dowie hélt áfram.

,,Ég fer ekki eftir viðbrögðum stuðningsmannana þegar ég vel hvaða leikmann ég kaupi. Ég yrði hissa ef hann fengi ekki góð viðbrögð þegar hann snýr aftur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.