25.08.05 - 13:09
Magnús Már Einarsson
Sava farinn frá Fulham til Llorca (Staðfest)

Sava með fynda Zorro grímu.

Sava með fynda Zorro grímu.

Framherjinn Facundo Sava hefur yfirgefið herbúðir Fulham og gengið til liðs við spænska liðið Lorca Deportiva sem vann sér sæti í næstefstu deild þar í landi í vor.
Sava sem er 31 árs Argentínumaður kom til Fulham frá Gimnasia de Jujuy árið 2002. Hann skoraði alls sjö mörk í 42 leikjum fyrir Fulham en hann hefur minna fengið að undanfarin ár og var hann í láni hjá Celta Vigo á síðustu leiktíð.
Vissir þú að:
Sava fagnaði á sínum tíma mörkunum sínum með því að setja upp Zorro grímu en hann geymdi hana á sér í leikjum. Hann fékk fullt af grímum frá aðdáendum eftir að hafa notað grímuna í fyrsta skipti í Argentínu.