25.08.06 - 01:36
Hafliði Breiðfjörð
Nicolas Anelka til Bolton (Staðfest)

Anelka fagnar marki með Liverpool.

Mynd: Getty Images

Anelka fagnar marki með Liverpool.

Mynd: Getty Images
Franski framerjinn Nicolas Anelka gæti leikið með Bolton Wanderers gegn Charlton Athletic í ensku úrvaldeildinni á morgun en á vefsíðu félagsins er staðfest nú í kvöld að Bolton hafa gengið frá 8 milljón punda kaupum á leikmanninum frá Fenerbache í Tyrklandi í gærkvöld.
Bolton verður fjórða félagið á Englandi sem Anelka sem er 27 ára gamall leikur fyrir því hann hefur einnig verið hjá Arsenal, Liverpool og Manchester City. Anelka hefur áður átt í persónulegum vandræðum og samskiptavandamálum hjá fyrri félögum og Sam Allardyce stjóri Bolton var spurður hvort þetta yrði ekki vandamál.
,,Ég veit ekki með vissu fyrr en við höfum unnið saman hvort þetta mun ganga eða ekki," sagði Allardyce.
,,Ég óttast ekki eða kvíði fyir neinu útaf eldra orðspori. Þolinmæði er dyggð og ég er ánægður með að geta sagt að öll biðin og vinnan sem við höfum unnið bakvið tjöldin hefur borgað sig. Nicolas er leikmaður með ótrúlega tölfræði í úrvalsdeildinni. Hann var fæddur markaskorari. Hæfileikar hans og reynsla verða mjög verðmikið fyrir okkur."