25.09.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wirtz kemur fyrr inn í þýska hópinn út af meiðslum


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Kai Havertz og Jamal Musiala urðu fyrir meiðslum í leik Þýskalands og Hollandi í gær og verða þeir ekki meira með landsliðinu í þessum landsleikjaglugga.
Þeir áttu báðir að spila gegn Grikkjum en geta það ekki vegna meiðsla.
Younes Ebnoutalib meiddist einnig en ekki er víst hversu alvarleg þau meiðsli eru.
Þeir áttu báðir að spila gegn Grikkjum en geta það ekki vegna meiðsla.
Younes Ebnoutalib meiddist einnig en ekki er víst hversu alvarleg þau meiðsli eru.

TENGT EFNI
Havertz snýr aftur til Arsenal vegna meiðslanna
Jonathan Burkardt, leikmaður Frankfurt, kemur inn í þýska hópinn fyrir leikinn gegn Grikkjum og sömuleiðis Florian Wirtz sem er leikmaður Liverpool. Þeir áttu að koma inn í hópinn eftir þann leik þar sem Jurgen Klopp ætlaði að skoða marga leikmenn í þessum glugga og skipti hópnum í tvennt.
Þeir Burkardt og Wirtz verða því til taks í þremur leikjum en ekki tveimur eins og upphaflega var áætlað. Þýskaland á líka eftir að mæta Serbíu og mætir svo Grikkjum aftur.
Þeir Burkardt og Wirtz verða því til taks í þremur leikjum en ekki tveimur eins og upphaflega var áætlað. Þýskaland á líka eftir að mæta Serbíu og mætir svo Grikkjum aftur.
