Fotbolti.net
25.10.06 - 09:09
Guðmundur Dagur Ólafsson

Dennis Wise tekinn við Leeds United (Staðfest)

Dennis Wise tekinn við Leeds United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur staðfest að fyrrum miðjumaður enska landsliðsins, Dennis Wise, muni taka við sem knattspyrnustjóri félagsins og mun aðstoðarmaður hans vera úrúgvæinn Gustavo Poyet.
Wise og Poyet, sem léku saman með Chelsea á árum áður, mynduðu gott samstarf hjá Swindon Town og varð það til þess að Ken Bates, stjórnarformaður Leeds, vildi fá þá félaga til sín.

Þeir taka við starfinu af John Carver en hann hafði tekið tímabundið við stjórnartaumunum eftir að Kevin Blackwell var rekinn í september. Gengið versnaði hinsvegar þegar Carver tók við og tapaði félagið fjórum leikjum í röð og situr nú í næstneðsta sæti deildarinnar.

Wise mun taka formlega við stjórnartaumunum í dag en það náðist samkomulag við hann á mánudaginn eftir að Leeds hafði fengið leyfi hjá Swindon að ræða við hann.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.