Fotbolti.net
25.10.07 - 12:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Gary Megson ráðinn stjóri Bolton (Staðfest)

Megson mun líklega ekki halda fyrir augun í leik Bolton gegn Braga í kvöld.

Megson mun líklega ekki halda fyrir augun í leik Bolton gegn Braga í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Bolton hefur ráðið Gary Megson, fyrrum stjóra Stoke, West Brom og Leicester, til þess að taka við af Sammy Lee á Rebook Stadium.
Megson skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið og mun stjórna því í sínum fyrsta leik gegn Aston Villa á sunnudaginn.

,,Gary hefur sýnt að hann hefur rétta skapferlið fyrir þá baráttu sem þetta tímbil verður án efa,” sagði Phil Gartside, stjórnarformaður Bolton.

Megson mun fylgjast með liðinu í fyrsta sinn í kvöld þegar Bolton tekur á móti SC Braga í Evrópukeppni félagsliða.

Margir stjórar voru orðaðir við starfið og ber þar helst að nefna Greame Souness, Steve Bruce, Paul Jewell og Javier Irureta.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.