25.10.07 - 12:53
Mist Rúnarsdóttir
Helga Sjöfn Jóhannesdóttir í Val (Staðfest)

Helga Sjöfn er gengin til liðs við Val

Mynd: Stjarnan.is

Helga Sjöfn er gengin til liðs við Val

Mynd: Stjarnan.is

Valsstúlkur hafa fengið góðan liðsstyrk en Helga Sjöfn Jóhannesdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Helga Sjöfn, sem er 22 ára miðjumaður, hefur leikið með Stjörnunni undanfarin tvö ár en hún er uppalin hjá ÍA. Hún á að baki tvo A-landsleiki og hefur þar að auki leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.
Auk Vals var Helga Sjöfn orðuð við Breiðablik fyrr í haust en nú er ljóst að hún mun spila á Hlíðarenda á næsta tímabili.
Á sama tíma og þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir Val er þetta mikill missir fyrir Stjörnuna en Helga Sjöfn hefur gegnt lykilhlutverki hjá liðinu.
Nýrráðinn þjálfari liðsins, Þorkell Máni Pétursson á ærið verkefni fyrir höndum en auk Helgu Sjafnar hefur Harpa Þorsteinsdóttir, aðalmarkaskorari liðsins, leitað á önnur mið en hún gekk til liðs við Breiðablik fyrr í haust.

Heimild: www.valur.is