25.10.26 - 12:33
Brynjar Ingi Erluson
Hefur jafnað sig af flensunni og gæti verið með

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Real Madrid tilkynnti í morgun að Thibaut Courtois myndi missa af stórleiknum gegn Barcelona í El Clásico í kvöld vegna veikinda, en nú virðist markvörðurinn hafa náð sér.

TENGT EFNI
Courtois með flensu og missir af El Clásico
Félagið tók skýrt fram að Courtois yrði ekki með vegna veikinda og að úkraínski markvörðurinn Illia Voloshyn tæki sæti hans í leikmannahópnum.
Nú greinir Athletic hins vegar frá því að Courtois sé vongóður um að geta ferðast með liðinu og tekið þátt í stórleiknum gegn Börsungum.
Courtois er 34 ára gamall og hefur verið aðalmarkvörður Madrídinga um árabil. Það væri því mikill styrkur fyrir liðið ef hann næði að vera með.
Annaðhvort hefur Courtois komist yfir eitthvert kraftaverkaseyði sem hefur komið honum á lappir á mettíma eða Real Madrid hefur verið að leika sálfræðileik við erkifjendur sína.