25.11.06 - 18:57
Magnús Már Einarsson
Hilmar Rafn framlengir við Hauka (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson


Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Sóknarmaðurinn Hilmar Rafn Emilsson hefur framlengt samning sinn við Hauka úr annarri deild og því er ljóst að hann fer ekki til Keflvíkinga þar sem hann hefur verið til reynslu að undanförnu.
Hilmar Rafn er uppalinn hjá Haukum og hefur hann alls skorað ellefu mörk í 37 leikjum fyrir meistaraflokk félagsins. Tvö þessara marka komu í sextán leikjum í fyrstu deildinni í sumar.
Í fyrra skoraði þessi tvítugi leikmaður hins vegar sjö mörk, einnig í sextán leikjum í fyrstu deildinni.
Í fyrra skoraði þessi tvítugi leikmaður hins vegar sjö mörk, einnig í sextán leikjum í fyrstu deildinni.
Heimild: Heimasíða Hauka
