Fotbolti.net
25.11.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Pétur Geir Svavarsson í Fjarðabyggð (Staðfest)

Pétur Geir Svavarsson (fyrir miðju) ásamt öðrum leikmönnum Fjarðabyggðar sem hafa gert nýjan samning við félagið.

Pétur Geir Svavarsson (fyrir miðju) ásamt öðrum leikmönnum Fjarðabyggðar sem hafa gert nýjan samning við félagið.

Canon

Mynd: Fjarðabyggð

Framherjinn Pétur Geir Svavarsson hefur gert tveggja ára samning við Fjarðabyggð úr fyrstu deild en hann kemur frá BÍ/Bolungarvík.
Pétur Geir er mikill markaskorari en hann var markahæstur í þriðju deildinni í sumar með 25 mörk í 19 leikjum samanlagt í riðla og úrslitakeppninni.

Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur leikið með BÍ/Bolungarvík og áður Bolungarvík auk þess sem hann var á mála hjá HK um stund.

Hann skrifaði undir samninginn við Fjarðabyggð í gær en við sama tækifæri skrifuðu Magni Fannberg þjálfari liðsins og Elvar Jónsson aðstoðarþjálfari undir samninga.

Þá hefur Fjarðabyggð að undanförnu samið við Hauk Ingvar Sigurbergsson fyrirliða, Srdjan Rajkovic markvörð ársins í 1.deild, Jóhann Ragnar Benediktsson einn lykilmanna liðsins og tvo unga og efnilega leikmenn, miðjumanninn Gísla Má Magnússon og framherjann Fannar Árnason.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.