Fotbolti.net
25.11.14 - 09:25
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Ings fremstur

Danny Ings leiðir framlínuna.

Danny Ings leiðir framlínuna.

Canon

Mynd: Getty Images

Þá er komið að liði vikunnar í enska boltanum en við stillum upp í 4-2-3-1 leikkerfið að þessu sinni. Í liðinu eru þrír leikmenn Crystal Palace eftir glæsilegan sigur gegn Liverpool. Manchester United vann Arsenal en kom ekki manni inn í liðið þó David de Gea hafi bankað fast á dyrnar.


Markvörður: Ben Foster, West Bromwich Albion
Ef hann hefði ekki verið á eldi hefði liðið fengið útreið gegn Chelsea.

Hægri bakvörður: Seamus Coleman, Everton
Írinn hefur jafnað sig eftir meiðsli og var flottur í naumum sigri gegn West Ham.

Miðvörður: Jason Shackell, Burnley
Þessi 31 árs varnarmaður var afar sterkur í loftinu í góðum sigri gegn Stoke.

Miðvörður: Scott Dann, Crystal Palace
Hefur reynst Palace happafengur síðan hann kom í janúar og hann stýrði vörninni gegn Liverpool.

Vinstri bakvörður: Massadio Haidara, Newcastle
Farinn að finna sig eftir brösótta byrjun hjá Newcastle.

Miðjumaður: Mile Jedinak, Crystal Palace
Kórónaði góðan leik sinn með því að skora stórglæsilegt mark úr aukaspyrnu.

Miðjumaður: Moussa Sissoko, Newcastle
Þessi kraftmikli leikmaður hirti fyrirsagnirnar með því að skora sigurmarkið gegn QPR en frammistaða hans var góð að mörgu öðru leyti.

Vængmaður: Yannick Bolasie, Crystal Palace
Fór á kostum með Kongó í miðri síðustu viku og fór síðan afar illa með Liverpool á sunnudag. Maður leiksins.

Sóknarmiðjumaður: Oscar, Chelsea
Var í stuði gegn West Brom. Skapaði mikið fram á við og lagði upp fyrir Diego Costa.

Vængmaður: Christian Eriksen, Tottenham
Hefur verið upp og niður í upphafi tímabils en sýndi sparihliðarnar gegn Hull og skoraði laglegt sigurmark í blálokin.

Sóknarmaður: Danny Ings, Burnley
Skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Stoke. Afar mikilvægur sigur hjá Burnley í fallbaráttunni en liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Daninn geðþekki Christian Eriksen er í liðinu.

Daninn geðþekki Christian Eriksen er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.