Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. nóvember 2021 10:30
Elvar Geir Magnússon
Messi og Pochettino fá falleinkunn frá L'Equipe
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: EPA
Franska blaðið L'Equipe gefur Lionel Messi falleinkunn fyrir frammistöðu hans í 2-1 tapi Paris Saint-Germain gegn Manchester City í Meistaradeildinni í gær.

Blaðið segir að það séu kröfur á argentínska snillinginn að gera meira. Hann hafi tekið margar rangar ákvarðanir á síðasta þriðjungi og átt í vandræðum gegn varnarmönnum City.

Messi fær 4 í einkunn (af 10), sömu einkunn og blaðið gefur Mauricio Pochettino, stjóra PSG. þeir Neymar og Kylian Mbappe voru heldur ekki teknir silkihönskum og fengu 5 í einkunn.

Manchester City tryggði sér toppsætið með sigrinum í gær en öruggt er að PSG fylgir í 16-liða úrslitin.

Hér má sjá einkunnagjöf L'Equipe:
Athugasemdir
banner
banner