Fotbolti.net
25.11.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Emery með Garnacho í kuldanum

Emery með Garnacho í kuldanum
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, var með tvo varamarkverði á bekknum í 1-0 tapinu gegn Galatasaray í Meistaradeildinni í gær, en Alejandro Garnacho var hvergi sjáanlegur.
Markverðirnir Marco Bizot og James Wright voru báðir valdir í leikmannahópinn og þótti það nokkuð sérstakt að Villa skyldi vera með tvo varamarkverði á bekknum fyrir þennan leik.

Það sem vakti þó enn meiri athygli var að Garnacho var hvergi sjáanlegur, þrátt fyrir að Emery hefði getað valið einn leikmann til viðbótar í hópinn.

Villa fékk Garnacho á láni frá Chelsea í sumar og tilkynnti Lundúnafélaginu að það hygðist gera félagaskipti hans varanleg.

Kaupskylda er í lánssamningnum og eru skilyrðin fyrir því að hún taki gildi nokkuð auðveld viðureignar. Villa virðist hins vegar vera að gera sitt besta til að komast hjá því að virkja hana.

Garnacho, sem er 22 ára gamall, hefur ekki verið í hópnum í síðustu tveimur deildarleikjum og hefur aðeins spilað 34 mínútur í keppninni á tímabilinu.

Hann virðist alls ekki vera hluti af framtíðaráformum Emery og gaf spænski stjórinn það raunar sterklega til kynna í viðtali.

„Í dag valdi ég þá leikmenn sem ég tel besta kostinn fyrir okkur,“ sagði Emery.

Þetta er annað árið í röð sem Villa gerir lánssamning með kaupskyldu og hættir síðan að nota viðkomandi leikmann. Félagið fékk Harvey Elliott á láni frá Liverpool en ákvað síðar að hætta að spila honum til að komast hjá því að virkja kaupskylduna.

Önnur félög munu eflaust hugsa sig tvisvar um áður en þau lána leikmenn til Villa með sambærilegum skilmálum.

Það má því gera ráð fyrir að Garnacho skoði möguleika sína í janúar og reyni að losna undan lánssamningnum. Það er þó ekki svo einfalt, því Chelsea og Aston Villa þurfa að komast að samkomulagi um að rifta honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.