25.11.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Haaland niðurlútur - „Byrjar að efast um allt“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Norski framherjinn Erling Braut Haaland segir frammistöðu Manchester City hafa verið langt undir getu í 2-2 jafnteflinu gegn Napoli í Meistaradeildinni í gær.
Man City hefur nú leikið þrjá leiki í röð í öllum keppnum án sigurs.
Liðið lenti tvisvar undir gegn Napoli í Meistaradeildinni, en náði í bæði skiptin að jafna metin og bjarga stigi.
Haaland, sem hefur verið kaldur fyrir framan markið í undanförnum leikjum, segir frammistöðuna einfaldlega ekki nógu góða fyrir félag af þessari stærðargráðu.
„Við reyndum að setja pressu á þá, en okkur tókst það ekki. Þetta er ekki nógu gott. Við leyfðum þeim að sækja á okkur allt of auðveldlega og náðum hvorki að stjórna leiknum né taka hann í okkar hendur.“
„Fótbolti getur verið bæði auðveldur og erfiður. Þegar þú vinnur leiki virðist allt svo einfalt og þú veist nákvæmlega hvað þú ert að gera. En þegar þú ert ekki að vinna leiki byrjar þú að efast um allt. Það besta væri að hugsa sem minnst, en það getur verið erfitt á svona stundum.“
„Við erum með ótrúlega mikil gæði í liðinu. Þetta snýst um að ná því besta út úr hverjum einasta leikmanni. Við verðum að standa saman, vera jákvæðir og mæta af fullum krafti í næstu leiki.“
„Næst mætum við meisturunum og það verður erfiðasti leikur tímabilsins. Við þurfum að eiga toppleik þar,“ sagði Haaland.
Man City heimsækir Englandsmeistara Arsenal á Emirates-leikvanginn í ensku úrvalsdeildinni um helgina og ef marka má viðureignir þessara liða undanfarin ár er óhætt að búast við hörkuleik og miklum látum.