25.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Segir dómarann og VAR hafa brugðist á Emirates - „Ég er ekki að væla“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Niko Kovac, þjálfari Borussia Dortmund, var ekki sáttur við dómgæsluna í 1-1 jafntefli liðsins gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu í gær.

TENGT EFNI
Arteta: Það var eiginlega ótrúlegt
Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir eftir aðeins tíu mínútna leik, en Max Beier jafnaði metin fyrir Dortmund í síðari hálfleiknum.
Arsenal fékk fjölmörg færi til að gera út um leikinn og Dortmund kom boltanum í netið á ný, en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli.
Kovac var ekki sáttur við dómgæsluna og taldi sína menn eiga að fá vítaspyrnu snemma í síðari hálfleiknum þegar boltinn fór í höndina á Gyökeres, en atvikið var ekki skoðað af VAR.

„Mér fannst VAR eiga að skoða handaratvikið. Það var full ástæða til þess.“
„Þeir eru að reyna að skipta sér minna af leiknum, en það þýðir ekki að þeir eigi að sleppa því að grípa inn í þegar þess er þörf.“
„Í svona atviki verður að minnsta kosti að vera hægt að hafa samband við VAR-herbergið og segja: ‚Skoðum þetta aðeins.‘“
„Ég er ekkert að væla yfir þessu. Svona er þetta bara, en við náðum í stig og það er stórt stig á útivelli gegn Arsenal. Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur öll, stuðningsmennina, liðið og félagið,“ sagði Kovac.