25.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Telja að eitthvað gruggugt hafi átt sér stað og ætla að áfrýja niðurstöðunni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fótboltasamband Marokkó er allt annað en sátt við niðurstöðu Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS) í Lausanne í Sviss, sem úrskurðaði Senegal Afríkumeistara í gær. Sambandið hyggst nú áfrýja niðurstöðunni til hæstaréttar.

TENGT EFNI
Senegal úrskurðað Afríkumeistari (Staðfest)
Eftir tíu mánaða óvissu hefur Alþjóðaíþróttadómstóllinn (CAS) komist að þeirri niðurstöðu að Senegal sé réttmætur sigurvegari Afríkukeppninnar eftir sigurinn í úrslitaleiknum sem fór fram í byrjun árs.
Mikil dramatík var í úrslitaleiknum, en leikmenn Senegal gengu af velli eftir að mark var dæmt af þeim og Marokkó fékk vítaspyrnu.
Senegalar ákváðu þó að snúa aftur á völlinn og klára leikinn. Brahim Diaz tók þá afleita Panenka-spyrnu úr vítinu og klúðraði gullnu tækifæri fyrir Marokkó. Senegal hafði svo betur eftir framlengingu og fagnaði titlinum.
Titillinn var hins vegar síðar tekinn af Senegal á þeim forsendum að liðið hefði brotið reglur með því að ganga af velli. Marokkó var því dæmt sigurinn og titillinn afhentur Marokkómönnum, en senegalska fótboltasambandið kærði niðurstöðuna til CAS.
Nú, tíu mánuðum síðar, hefur CAS úrskurðað Senegal í vil og staðfest að liðið sé réttmætur sigurvegari keppninnar. Niðurstaðan hefur hins vegar farið illa í Marokkómenn, sem telja að ekki hafi allt verið með felldu við meðferð málsins.
Marokkóska fótboltasambandið heldur því fram að Abdoulaye Fall, forseti senegalska sambandsins, hafi átt í símasamskiptum við Ulrich Haas, einn gerðardómara málsins, og telur það ástæðu til að ógilda úrskurðinn.
Sambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það segir trúverðugleika CAS í húfi og hyggst leita réttar síns með því að áfrýja niðurstöðunni til hæstaréttar.
Það er mjög sjaldgæft að mál sem þessi fari svo langt, enda þarf yfirleitt að sanna að eitthvað alvarlegt hafi farið úrskeiðis, til dæmis að gerðardómari hafi gerst sekur um misferli, til að fá niðurstöðu CAS breytt.
Bæði Fall og Haas hafa harðneitað því að hafa átt í samskiptum áður en úrskurðurinn var kveðinn upp.