Fotbolti.net
25.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Vonarstjarna Ajax frá í fjóra mánuði

Vonarstjarna Ajax frá í fjóra mánuði
Canon

Mynd: EPA

Hinn ungi og efnilegi miðjumaður Jorthy Mokio verður frá keppni næstu mánuði eftir að hafa fótbrotnað um helgina.
Mokio er aðeins 18 ára gamall og er talinn ein helsta vonarstjarna hollenska stórliðsins Ajax.

Hann varð yngsti erlendi leikmaðurinn til að spila fyrir Ajax fyrir tveimur árum og er jafnframt næstyngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að hefja leik í byrjunarliðinu, á eftir Clarence Seedorf.

Mokio varð fyrir alvarlegum meiðslum í leik Ajax gegn ADO Den Haag um helgina og kom í ljós að hann hafði fótbrotnað. Hann þurfti að gangast undir aðgerð og er ekki búist við að hann snúi aftur á völlinn fyrr en undir lok tímabilsins.

Þessi varnarsinnaði miðjumaður hefur þegar vakið áhuga stórliða á borð við Barcelona, Bayern München og Real Madrid.

Mokio er fæddur og uppalinn í Belgíu og þreytti frumraun sína með belgíska landsliðinu í mars á síðasta ári. Hann ákvað hins vegar fyrr á þessu ári að skipta yfir í Kongó, þar sem hann á rætur sínar að rekja.

Hann hefur þegar leikið einn vináttulandsleik fyrir Kongó, en fær ekki að spila keppnisleiki með landsliðinu fyrr en árið 2028.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.