25.11.26 - 23:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Isak: Hættulegir sama hver spilar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Alexander Isak skoraði tvennu í 3-0 sigri Liverpool á Club Brugge í Belgíu í Meistaradeildinni í kvöld. Liðið skaust upp í 5. sæti deildarkeppninnar með sigrinum.
„Fullkominn sigur á útivelli. Það var ekki víst hvernig þetta myndi enda fram að öðru markinu. Þeir spiluðu góðan leik, við töluðum um að þurfa að ná inn öðru marki," sagði Isak.
Alisson er fyrsti markvörður Liverpool til að leggja upp mark en hann lagði upp seinna mark Isak sem innsiglaði sigurinn.
„Þeir spiluðu maður á mann svo ég var á móti varnarmanni allan leikinn. Alisson reyndi að sparka fram allan leikinn svo ég er ánægður að hann hætti ekki að reyna," sagði Isak.
Isak hefur skorað tíu mörk í 16 leikjum á tímabilinu en hann skoraði aðeins fjögur mörk í 22 leikjum á síðasta tímabili.
„Það er erfitt að segja nákvæmlega hvar við erum og hversu góðir við erum en ég get sagt að ég sé á góðum stað og liðið er á góðum stað sem er það mikilvægasta. Vonandi verður þetta enn betra. Sóknin í heild sinni er byrjuð að tikka. Við erum með margar útgáfur og við erum með hættulega sókn sama hver kemur inn," sagði Isak.