Fotbolti.net
25.11.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Snædís áfram hjá Stjörnunni (Staðfest) - KR hafði áhuga

Snædís áfram hjá Stjörnunni (Staðfest) - KR hafði áhuga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Snædís María Jörundsdóttir hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna og er nú samningsbundin út tímabilið 2028. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði KR áhuga á því að fá hana í sínar raðir en hún var með lausan samning.

„Knattspyrnudeild Stjörnunnar er stolt að Snædís María hafi ákveðið að halda áfram með okkur og taka slaginn áfram í bláu treyjunni. Hún er einn af okkar lykilleikmönnum og er hennar framlag til liðsins afar mikilvægt," segir m.a. í tilkynningu Stjörnunnar.
Snædís María er 22 ára sóknarmaður sem uppalin er hjá Stjörnunni en lék seinni hluta tímabilsins 2023 og tímabilið 2024 hjá FH áður en hún sneri aftur í Garðabæ.

Á liðnu tímabili skoraði hún fjögur mörk í deildinni og tvö í bikarnum. Hún á að baki 32 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði í þeim 18 mörk.
Snædís áfram hjá Stjörnunni (Staðfest) - KR hafði áhuga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.