25.11.26 - 15:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gyrðir yfirgefur KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tilkynnti í dag að félagið og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson hefðu komist að samkomulagi um samningslok.
Gyrðir er uppalinn hjá KR og lék á láni með Þór seinni hluta tímabilsins. Hann lék virkilega vel með Þór og átti stóran þátt í því að liðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni. Hann skoraði eitt mark og kom það í hans fyrsta leik fyrir Þór þegar liðið vann Víking í júlí.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa Þór, Þróttur og Keflavík áhuga á Gyrði og mögulega fleiri félög.

Gyrðir er 27 ára fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað miðsvæðis og í varnarlínunni.
Gyrðir hóf meistaraflokksferilinn hjá Leikni 2019 og var þar í fjögur tímabil áður en hann fór í FH hvar hann var í eitt og hálft tímabil. Í sumarglugganum 2024 var hann keyptur heim í KR. Fyrri hluta tímabilsins í ár lék Gyrðir í sex deildarleikjum og einum bikarleik með KR.
„Við þökkum Gyrði kærlega fyrir góð ár í svart-hvítu og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi!" segir í tilkynningu KR.