Fotbolti.net
25.11.26 - 19:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Furðar sig á slæmri enskukunnáttu leikmanna

Furðar sig á slæmri enskukunnáttu leikmanna
Canon

Mynd: EPA

Hlutirnir hafa ekki verið að ganga upp hjá Nottingham Forest en liðið er stigi fyrir ofan fallsæti og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu ellefu leikjunum.

Oliver Glasner tók við liðinu síðasta sumar en hann gagnrýnir standardinn hjá félaginu. Hann furðar sig á því að nokkrir leikmenn liðsins tali ekki ensku þrátt fyrir að hafa verið hjá félaginu í nokkur ár.
„Stöðugleiki í félagi felst í því að hafa standard. Allir sem ganga til liðs við félagið skuldbinda sig til að fylgja þeim. Ég held, alveg heiðarlega, að standardinn hafi ekki verið nógu hár," sagði Glasner.

„Við erum með leikmenn sem hafa verið hér í fjögur ár og geta ekki talað ensku. Ef þú ferð til Ítalíu, eftir þrjá mánuði, þá gefur hver einasti leikmaður viðtal á ítölsku."

„Fyrir mér, ef ég vil þjálfa í Englandi, verð ég að tala ensku. Ef ég vil þjálfa á Ítalíu, verð ég að tala ítölsku. Annars, Oliver Glasner, ef þú vilt tala þitt mál, vertu heima í Austurríki, allir skilja þig, en hvergi annars staðar.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.