Fotbolti.net
25.11.26 - 14:16
Elvar Geir Magnússon

Með látinn lýsanda með hjálp gervigreindar

John Motson.

John Motson.

Canon

Mynd: Getty Images

BBC greinir frá því að í næstu útgáfu fótboltatölvuleiksins EA Sports FC, áður þekktur sem FIFA, verði rödd hins látna John Motson notuð til að lýsa leikjum.

Motson, sem lést árið 2023, var aðallýsandi breska ríkisútvarpsins í áratugi og gegndi sama hlutverki fyrir tölvuleikjaseríuna í kringum aldamótin.

Endurgerð á rödd Motson verður sköpuð með gervigreind í gegnum gamlar lýsingar hans en fjölskylda hans, ekkja og synir, gáfi leyfi.
John Motson er látinn
TENGT EFNI

John Motson er látinn

„Ég ólst upp með FIFA og það hefur mikla þýðingu að fá rödd pabba aftur í leikinn," segir Fred Motson og lítur á þetta sem viðurkenningu fyrir störf föður síns.

Electronic Arts, framleiðandi leiksins, greiðir fjölskyldu Motson fyrir réttinn til að nota ímynd hans og endurskapa rödd hans. Upphæðin er ekki gefin upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.