Fotbolti.net
25.11.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ræða Gauja Þórðar sem var efni í Hollywood mynd

Guðjón Þórðarson.

Guðjón Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Guðjón Þórðarson er einn besti fótboltaþjálfari sem við Íslendingar höfum átt. Hann lést á dögunum, 71 árs gamall. Einn af helstu styrkleikum Guðjóns var hversu góður ræðumaður hann var.

Þessi frétt er unnin upp úr ítarlegum pistli sem birtist hér á dögunum á Fótbolta.net. Hægt er að nálgast pistilinn neðst í fréttinni en hann er fyrir áskrifendur síðunnar. Fyrsta vikan í áskrift er frí.

Þú getur keypt áskrift með því að smella hérna
.
Ein af sögunum sem hefur lifað hvað lengst um Guðjón er ræða sem hann hélt fyrir hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn gegn KR árið 1996. Eftir að hafa gengið brösuglega á tímabilinu var mikið undir hjá Skagamönnum, en Guðjón hafði ákveðna áætlun um hvernig hann ætlaði að undirbúa sína menn fyrir leikinn.

„Hann fór með okkur í göngutúr í kringum svæðið og tók svo alla með sér upp í stúku," sagði Alexander Högnason, sem lék þá með ÍA. „Þetta var líklega um tveimur tímum fyrir leik. Þá hélt hann þessa ræðu sem allir nefna og minnast á. Eftir hana voru menn alveg sannfærðir um að það væru aðeins ein úrslit sem kæmu til greina í leiknum."

Ræðan snerist ekki aðeins um fótboltann sjálfan. Guðjón beindi athyglinni að fólkinu sem stóð á bak við félagið og þeirri ábyrgð sem fylgdi því að spila fyrir ÍA.

„Það snerist aðallega um að þegar stúkan yrði full, um klukkutíma síðar, yrði ekki í boði að tapa svona leik fyrir öllum þessum Skagamönnum sem ætluðu að mæta á völlinn. Hann talaði um allt sem fylgdi því að spila fyrir félagið og fólkið í kringum það. Það var rosaleg ræða.“

Ólafur Adolfsson, sem var einnig leikmaður ÍA á þessum tíma, man einnig eftir þessari stund. Hann segir Guðjón hafa tekið liðið upp í stúku um morguninn og flutt þar ræðu sem hafði mikil áhrif á leikmennina.

„Það var geggjuð hvatning,“ segir Ólafur.

Það sem gerðist þegar liðin gengu inn á völlinn sat svo eftir í huga hans. Það hafði rignt alla vikuna og völlurinn var gegnsósa, en þegar leikurinn fór fram var blankalogn og skínandi sól.

„Þegar maður gekk fram hjá KR-ingunum sá maður að þeir voru orðnir hvítir í framan. Þeir kviðu fyrir þessu. Þá vorum hundrað prósent sannfærðir um að þetta væri okkar leikur. Við vorum aldrei að fara að tapa honum.“

Þarna birtist kannski betur en nokkurs staðar hvernig Guðjón náði til leikmanna sinna. Hann hafði ekki aðeins sannfært þá um að þeir gætu unnið leikinn, heldur komið þeim í þá stöðu að þeir trúðu því að niðurstaðan væri nánast fyrirfram ákveðin. ÍA vann leikinn 4-1 og varð Íslandsmeistari fyrir framan rúmlega 5000 manns.

„Hann hafði einstakt lag á því að laða fram það besta í leikmönnum. Hann fékk menn til að trúa því að þeir gætu miklu meira en þeir héldu sjálfir. Hann gat fengið mann til að trúa því að maður gæti klárað hluti sem maður hefði kannski annars ekki talið sig ráða við,“ segir Ólafur.

Alexander lýsir ræðunni sem einni eftirminnilegustu upplifun sinni úr fótboltanum. „Ræðan sem hann hélt yfir okkur í stúkunni fyrir leikinn var alveg efni í Hollywood-mynd.“

Það er lýsing sem segir ansi margt. Guðjón gat skapað augnablik sem sátu eftir, löngu eftir að leiknum lauk.

Hér fyrir neðan er hægt að lesa pistilinn í heild sinni.

Enginn eins og Guðjón Þórðarson - „Hann var þjálfarinn minn númer eitt, tvö og þrjú"
TENGT EFNI

Enginn eins og Guðjón Þórðarson - „Hann var þjálfarinn minn númer eitt, tvö og þrjú"

Guðjón var frábær ræðumaður.

Guðjón var frábær ræðumaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Gaui á hliðarlínunni.

Gaui á hliðarlínunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Kunni það betur en flestir að peppa menn í gang.

Kunni það betur en flestir að peppa menn í gang.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.