25.11.26 - 08:19
Elvar Geir Magnússon
Semja við Rosenborg um greiðslu fyrir Frey

Freyr er efstur á blaði hjá Swansea.

Mynd: EPA

Mynd: Kortrijk

Freyr er efstur á blaði hjá Swansea.

Mynd: EPA
Sky Sports segir ljóst að Freyr Alexandersson sé efstur á blaði í stjóraleit Swansea og félagið hefur boðið honum að taka við sem stjóri liðsins.
Swansea tapaði fyrir toppliði Middlesbrough í Championship-deildinni í gær en Ashley Williams stýrir liðinu til bráðabirgða á meðan félagið leitar að stjóra til að taka við af Vitor Matos sem yfirgaf félagið og hélt til Strasbourg.

TENGT EFNI
Greiningafyrirtækið sem leiddi Swansea að Freysa
Viðræður Swansea og Freys eru sagðar langt komnar og samkvæmt Sky er Swansea að semja við Rosenborg um greiðslu fyrir Frey. Ef samkomulag næst við Frey þarf Swansea að ná saman með Rosenborg.
Freyr tók við Rosenborg í sumar og hefur náð mjög áhugaverðum árangri, rifið liðið upp í spennandi Evrópubaráttu.
Samkvæmt heimildum Sky Sports News er Freyr fyrsti kostur á óskalista Swansea en félagið hefur einnig aðra kosti í huga ef samningar nást ekki fyrir lok vikunnar.

Heimild: Sky Sports

Mynd: Kortrijk
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Middlesbrough | 17 | +14 | 35 |
| 2 | Wolves | 17 | +12 | 34 |
| 3 | Stoke City | 16 | +7 | 32 |
| 4 | Birmingham | 16 | +13 | 29 |
| 5 | West Brom | 16 | +8 | 29 |
| 6 | Southampton | 17 | +16 | 28 |
| 7 | QPR | 17 | +7 | 28 |
| 8 | Swansea | 17 | +3 | 27 |
| 9 | Sheffield Utd | 17 | +6 | 26 |
| 10 | Portsmouth | 17 | +3 | 26 |
| 11 | Norwich | 17 | +9 | 25 |
| 12 | West Ham | 17 | +13 | 24 |
| 13 | Blackburn | 16 | -1 | 22 |
| 14 | Wrexham | 17 | -1 | 22 |
| 15 | Charlton Athletic | 17 | -7 | 20 |
| 16 | Bristol City | 17 | -10 | 19 |
| 17 | Cardiff City | 17 | -5 | 18 |
| 18 | Millwall | 16 | -5 | 18 |
| 19 | Bolton | 16 | -9 | 18 |
| 20 | Watford | 16 | -14 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 17 | -16 | 15 |
| 22 | Preston NE | 17 | -13 | 12 |
| 23 | Burnley | 16 | -9 | 11 |
| 24 | Derby County | 17 | -21 | 10 |